Að byrja í leikskóla

Velkomin til samstarfs um leikskólabarnið- bæklingur fyrir foreldra

strakarÞegar leikskólaganga barna hefst er mikilvægt að strax myndist góð tengsl á milli leikskóla og heimilis. Gagnkvæm virðing milli foreldra og leikskóla er grundvöllur þess að barninu líði vel og að það fái notið sín. Foreldrar eru fyrstu kennarar barnanna og það er hlutverk leikskólakennara að  koma á góðum samskiptum við foreldra þannig að gott samstarf sé um velferð barnsins. Allir foreldrar eiga það sameiginlegt að vilja börnunum sínum allt það besta. Hér má finna áhugavert viðtal við Anna Kirova prófessor við Háskólann í Alberta, Kanada, sem hefur sérhæft sig í málefnum sem snerta börn innflytjenda.

Í  upphafi þarf að tryggja að ákveðinn starfsmaður sinni aðlögun og fyrstu samskiptum við fjölskylduna, og að hann sé öruggur hlekkur eða “lykilpersóna” á milli heimilis og leikskóla. Leikskólinn þarf að fá góðar upplýsingar um barnið en ekki er síður mikilvægt að leikskólinn veiti foreldrum greinargóðar upplýsingar um skólastarfið, jafnvel útdrátt, einfaldaðar upplýsingar og ljósmyndir. Í leikskólanum Garðaborg hefur verið útbúin myndræn bók "Leikskólinn minn" sem ætluð nýjum börnum og foreldrum þeirra. Hér má sjá sýnishorn af bók Garðaborgar.

Á heimasíðu Leikskólasviðs undir Nýir Íslendingar er hægt að prenta út fjölbreytt skilaboð, upplýsingabæklinga, orðalista og önnur gögn á mörgum tungumálum. Rétt er að benda á að hægt er að nýta þýðingarvélar google til þess að þýða einföld skilaboð til foreldra sem ekki tala íslensku. Á Fjölvaka er hægt að nálgast samantekt á þýðingum um margt er viðkemur börnum og fjölskyldum þeirra og hægt er að benda foreldrum á tenglasíðuna hér á vefnum til að nálgast upplýsingar um íslenskt samfélag.    

Foreldrasamstarfið hefst þegar foreldrar hringja og staðfesta leikskólapláss. Oft koma foreldrar að skoða leikskólann og afla sér upplýsinga. Foreldrar eru boðaðir í viðtal, stundum kallað “fyrsta viðtal” þar sem skipst er á upplýsingum og gengið  frá dvalarsamningi. Oft fer þetta fyrsta viðtal fram í leikskólanum en einnig er það góður kostur að bjóða foreldrum upp á að viðtalið fari fram á heimili þeirra. Í þessu símtali, þegar foreldrar hringja og staðfesta leikskólapláss, kemur strax í ljós hvort þörf er á túlki og verður leikskólinn að hafa frumkvæði að því að bjóða hann, eða ákveða í samráði við foreldra hvernig þeim málum verður háttað.
 

Góð samskipti við foreldra frá upphafi, þekking þeirra á leikskólastarfinu og þátttaka í aðlögun barnsins eykur líkurnar á því að barnið upplifi vellíðan og öryggi í leikskólanum.  Myndræna orðabókin sem sagt er frá hér að neðan getur auðveldað samskipti við barn og foreldra sem ekki tala íslensku. Bókina er hægt að þróa og bæta inn myndum af barninu sjálfu og þeim aðstæðum sem eru í hverjum leikskóla. 

Ljáðu mér orð- Myndræn orðabók

Ljáðu mér orð er myndræn orðabók, hugsuð sem hjálpartæki, til þess að auðvelda barni með annað móðurmál en íslensku að eiga samskipti við börn og fullorðna þegar það byrjar í leikskóla. Hægt er að nálgast orðabókina með því að smella hér: Ljáðu mér orð en mælt er með því að teknar séu myndir af barninu sjálfu í þeim athöfnum sem settar eru upp í bókinni. Leikskólar geta síðan bætt inn orðum og athöfnum að vild.

Hér má finna fjölbreyttar leiðir til þess að auðvelda samskipti á milli leikskóla og foreldra sem ekki tala íslensku eða annað það tungumál sem nýtist í þeim samskiptum. 

Lykilpersóna
Túlkur
Fyrsta viðtal
Heimaviðtal
Aðlögun
Foreldrasamstarf

 

06.06.2008
Sumarnámskeið 7. - 8. ágúst
Sumarnámskeið fyrir kennara Ísbrú heldur fimmta sumarnámskeið sitt fyrir kennara á öllum skólastigum sem kenna nemendum með íslensku sem annað tungumál.
06.06.2008
Kynningar og fræðslufundir um fjölmenningarlegt leikskólastarf
Í maí og september verða haldnir kynningar-og fræðslufundir um fjölmenningarlegt leikskólastarf fyrir starfsfólk leikskóla í öllum hverfum borgarinnar.
06.06.2008
Ráðstefna í Ósló 6.-7. nóvember 2008
Áhugaverð ráðstefna verður haldin í Osló 6-7 nóvember 2008 um kennslu minnihlutamála.
03.04.2009
Fróðleikur
29.04.2008
Tenglasafn
15.04.2008
Á döfinni
03.04.2009
Heimamenning
20.11.2007
Alls konar fólk
15.11.2007

13.11.2007
Lykilpersóna
09.11.2007
Skráning
13.11.2007
Vinnustundir
09.11.2007
Samvinnuleikir
09.11.2007
Foreldrasamstarf
15.06.2009
Aðlögun
09.11.2007
Fyrsta viðtal
09.11.2007
Heimaviðtal
20.03.2009
Túlkur